Metta sem er 6 ára, jafn gömul reflinum, saumaði af kappi í tilefni dagsins.
Þann annan febrúar s.l. héldu kátir saumarar uppá 6 ára afmæli Njálurefilsins. Afmælisfagnaðurinn hófst með snörpum saumaskap og síðan var haldin vegleg afmælisveisla með fínustu súpu og sætindum. Það má segja að vinnan við saumaskapinn sé á lokametrunum. Búið er að sauma 75,70 metra að fullu og næstu 8 metrarnir eru langt komnir. Að þeim loknum verða aðeins sex metrar eftir og ef fram heldur sem horfir verður verkinu lokið á þessu ári. Að meðaltali hafa verið saumaðir um 13 metrar á ári en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að verkið tæki 10 ár þannig að saumaðir hafa verið fjórum metrum meira en gert var ráð fyrir á ári hverju.
Kátt saumafólk á 6 ára afmælinu.
F.v. Dieter, Gunnhildur, Sigurbjörg, systurnar Metta og Þórdís, Margrét, Lovísa, Helga og Steinunn.